Fermingarmyndir

Ferming er einstakur áfangi í lífi ungs fólks og á skilið fallegar myndir til minningar. Það þarf þó ekki alltaf að taka myndirnar á sjálfum fermingardeginum – oft er rólegra og þægilegra að velja annan dag. Sumarið er til dæmis frábær tími fyrir fermingarmyndir, þegar grasið er grænt og blómin í fullum blóma. Ég býð upp á faglega fermingarmyndatöku sem fangar persónuleika og gleði þessa mikilvæga tímabils.

Ég legg áherslu á að myndatakan sé þægileg og afslöppuð. Við leitum uppi fallega birtu og staðsetningar sem ramma inn persónuleikann, svo útkoman verði náttúruleg og sönn. Engar þvingaðar uppstillingar – bara fallegar minningar af þessum stóra áfanga.